06.09.2011 09:03:35 / sproti

Jæja, þá er hafin uppjárning og þjálfun fyrir smölun. Ætlum samt að fara í Skrapatungu í skemmtireið, hægt að mæla með henni við alla.
»
01.09.2011 21:37:41 / sproti
Jæja, þá er búið að skera úr um það.
Loki Laufeyjarson verður grár, jibbí.



»
31.08.2011 22:04:51 / sproti
Við ætlum að taka við hrossum í hagagöngu, 2000 kr án fóðurs, 5000 með gjöf.
Einnig getum við bætt við okkur hrossum í tammningu og þjálfun.Upplýsingar Þórarinn Torfi 8666547 og Eva 8922534 og
»
20.06.2011 14:38:08 / sproti

Frekar stór Sólfaxasonur er kastaður á Höfn. Hann er fíngerður og fríður.
Að vanda hjá þessari meri, lendi ég í vandræðum með að litgreina kappann.
Hann er til sölu og kostar 100.000 kr.
S: 892 2534 Eva
»
06.06.2011 12:14:33 / sproti
Þá er Rósa farin undir hest.
En við völdum á hana Ábóta frá Söðulsholti.

»
26.05.2011 15:20:43 / sproti
Stjarna fór undir hest í gær.
Völdum á hana Vísi frá Hávarsstöðum, rauðskjóttur töffari.
Búin að ræða við alla, hest, meri og eigendur og samþykktum það að ég fengi, bleikskjótta meri.


»
26.05.2011 15:17:04 / sproti
Frostrós köstuð, lítil rauð meri.
Fór út í hólf í gær, en komst að því þegar ég var komin á leiðarenda að myndavélin var rafhlöðulaus.

Fer aftur í dag.
»
24.05.2011 13:59:33 / sproti
Vill benda á tengilinn söluhross, sem var að bætast inn hjá okkur
»
26.03.2011 08:07:54 / sproti
»
08.03.2011 14:06:43 / sproti
Hver kannast ekki við það vandamál að gjörðin sé of stutt. Þú ert búinn að ná í gamla grána/skjóna/rauð osfv út í haga í lok ágúst og skellir undir hann skeifum. Ferð svo inn í kaffi vegna þess að þú ert þreyttur/þreytt eftir járninguna og færð þér kannski randalínu með kaffinu og svona, að því að það er nú þessi dagur. Og þegar allt þetta er afstaðið er sá gamli ennþá út í gerði og bíður eftir þér þolimóður. Nú er bara að setja við hann beislið og drýfa sig í það að þjálfa fyrir göngur sem eru eftir 2 vikur. Klárinn er teymdur heim að húsi bundinn við vatnsstampinn sem datt aftan af palli hjá vegagerðinni hérna um árið þetta er góður stampur sem þú ert búinn að eiga lengi. En allaveg nú er bara skella hnakknum á og sér á bak en viti menn gjörðinn er of stutt þú getur ekki hert hnakkinn á hestinn sumargrösin of kraftmikil þetta árið. En það er allt í laga því þú átt MÖRLENGINGU þú festir hana við móttökin og gjörðina svo í hana og áður en þú veist af ert þú og gamli másandi og blásandi í síðsumar blíðunni.
P.s ég áskil mér allan rétt á stafsetningarvillum
»
25.02.2011 23:41:58 / sproti
Hér kemur smá útskýring á handfanginu. Þetta er í raun ól eða spotti festur framan á hnakkinn. Nafnið er dregið af því þegar hesturinn fer að hrekkja segir maður ó shitt.
Seinna mun ég kannski ræða um þarfaþingið Mörlenging sem mikið er notuð á gangnahesta.
»
11.02.2011 21:07:56 / sproti
Það sem gott er að hafa í huga þegar riðið er út í roki. Fyrst og fremst þarf að hafa gott "ó shitt" handfang á hnakknum til að geta gripið í.. Einnig er gott að vera á ætið meðvitaður um skyndilegar vindhviður og þá kemur "ó shitt" handfangið að góðum notum. Þegar riðið er út í roki er ekki gott að vera á ungum hesti sem er verið að vinna með í taum hann gæti orðið taumkaldur og jafnvel kvíðinn með tímanum ef rokreið er mikið stunduð. Lágmark er svona 12 vetra traustir hestar sem þola flaxandi knapa sem rígheldur með annari í taum og í örvæntingu sinni grípur í "ó shitt" með hinni.
Góðar stundir: Þórarinn Torfi Finnbogason
»
09.02.2011 19:33:33 / sproti

Myndin er tekin frá mýrunum sumarið 2010 ekki það að landslagið breytist eitthvað milli ára. En samt skemmtileg reiðleið meðfram sjónum. Og svo í gegnum skóginn. (og já hann er hærri en maður þegar riðið er í gegn).
»
04.02.2011 21:25:51 / sproti
Símon Hrafn tók tók þessa í snjónum á Akureyri fyr í vetur
»
04.02.2011 17:10:12 / sproti
Í dag er 12ms standandi vindur og 17ms í hviðum hér í Höfn (Melasveit) þá væri nú gott að eiga reiðhús til þess að taka smá skrens inn í
»
Síður:
1 2